aik-rallycross
sudri
Heim :: Um Suðra :: Fréttir :: Myndaalbúm :: Tenglar :: Hafa samband :: Ábendingar :: Gestabók
Æfingar

Íþróttafélagið Suðri

Frjálsar í sumar

Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Laugardaiflogo_150ginn 9. júní næstkomandi fer Íslandsmót ÍF í frjálsum fram á Laugardalsvelli í Reykjavík. Keppt verður í 100m, 200m og 400m hlaupi, kúluvarpi, langstökki og spjótkasti ef næg þátttaka fæst.

Keppni hefst kl. 11:30, upphitun kl. 11:00.
Boðið verður upp á þríþraut fyrir 12 ára og yngri (60m. hlaup, langstökk og kúla).    
Tilkynnið þátttöku á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Hængsmót 2012

Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Nú er nýafstaðið 30. Hængsmótið á Akureyri.  Við fórum með 23 keppendur sem allir stóðu sig vel á mótinu.  Keppt var bæði í liða-, einstaklings- og í rennuflokki.
Kristófer Bergmann Skúlason var í 3 sæti í rennuflokki.
Suðri A : Reynir Arnar Ingólfsson, Sigríður Sigurjónsdóttir og Kristján Jón Gíslason unnu liðakeppni mótsins.
april_2012_017
Mótinu lauk svo með flottu lokahófi, með þriggja rétta máltíð, ræðuhöldum og happdrætti. 

Á myndinni má sjá hvar Margrét Óskarsdóttir tekur á móti happdrættisvinningum sem hún fékk.  



 

Unglingalandsmót UMFÍ

Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið um Verslunarmannahelgina á Selfossi í sumar. Þar munu fatlaðir íþróttamenn fá tækifæri til að taka þátt og keppa í sundi, frjálsum íþróttum og boccia. Mótið er fyrir aldurshópinn 11-18 ára. Það hefur tekist illa að fá fatlaða keppendur á Unglingalandsmót undanfarin ár en nú vonum við að vel takist til.
Þetta er frábær fjölskylduhátíð og mikil stemming  meðal keppenda og aðstandenda. Mótið verður auglýst betur síðar en takið endilega þennan tíma frá og látið berast innan ykkar raða.

Sjáumst á Selfossi í sumar

Bestu kveðjur

Þorbjörg Vilhjálmsdóttir, sérgreinastjóri íþrótta fatlaðra á Unglingalandsmóti UMFÍ, 2012

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í Reykjavík 2012

Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

23 keppendur frá Suðra tóku þátt í Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra dagana 30. mars - 1. apríl. Á mótinu kepptu um 400 íþróttamenn frá tæplega 30 félögum. Suðrafélagar kepptu í sundi, frjálsum íþróttum og boccia og stóðu sig vel að venju. Hulda Sigurjónsdóttir, María Sigurjónsdóttir og Bjarni Friðrik Ófeigsson nældu sér í gullverðlaun í frjálsum íþróttum. Í boccia komust 3 lið á verðlaunapall, Kristófer Skúlason og Jóhann Guðjónsson lentu í öðru sæti í rennuflokki, Suðri C - Kristín Lára Sigurðardóttir, Telma Þöll Þorbjörnsdóttir og Valdís Hrönn Jónsdóttir lentu í öðru sæti í 2. deild og Suðri F - Birgir Örn Viðarsson, Karl
slandsmt_sigga_405Haraldsson og Dagbjört Ósk Hrafnkelsdóttir fengu bronsverðlaun í 3. deild. Fleiri lið komust í úrslit og þar með upp um deild þótt ekki hafi þau komist á verðlaunapall. Liðum okkar í 1. deild fjölgar sífellt og á næsta ári mun félagið eiga þrjú lið í þeirri deild sem er efsta deildin í boccia. Íslandsmótinu lauk með glæsilegu lokahófi þar sem tæplega 500 manns skemmtu sér saman fram á nótt.
Suðrafélagar vekja alltaf eftirtekt fyrir samstöðu og jákvætt keppnisskap og getum við öll verið stolt af slíkri framkomu.

Við óskum öllum innilega til hamingju með frábærann árangur.


Birgir, Dagbjört og Kalli með lukkudýrið Suðraling.

Vinamót Suðra og Gnýs 2012

Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
IMG_0971Árlegt vinamót Gnýs og Suðra var haldið á Selfossi laugardaginn 17.mars. 44 keppendur tóku þátt í mótinu. Mótið er óhefðbundið á þann hátt að fjórir eru í hverju liði og er það blandað liðsmönnum úr báðum félögum. Hluti af leiknum er leikmenn velja nafn fyrir sitt lið. Það er alltaf spennandi að heyra þessi frumlegu nöfn og á laugardaginn voru eftirfarandi nöfn sett á liðin: Ferguson nautin, Kópur, Fiskar, Eldur, Rauða þruman, Skotturnar, Gordjöss stelpurnar, Vetrargríslingarnir, Sólheimar cocopuffs, 800 bar og Sólin sem sigraði mótið.
Eftir spennandi keppni í Iðu var haldið í Tíbrá þar sem öllum var boðið upp á gómsæta pizzu og gos. Þar fór fram verðlaunaafhending og skemmtinefndin sá um að halda uppi stuðinu með fjölbreyttum skemmtiatriðum. Mótið heppnaðist mjög vel eins og ævinlega og allir fóru sáttir og glaðir heim. Næsta ár munum við Suðrafólk fara á Sólheima og keppa þar með vinum okkar.
 
aik-rallycross
 
Vefhönnun, Hugsa sér!